Afturendahrós?

fat-couple1Skagfirska söngkonan Lilja Aðalsteins er alsæl með kærastann þar sem hann er hrifinn af rassi hennar. Unnusti Lilju um þessar mundir er iðnaðarmaðurinn Sámur Kárason. Hún segir að hann hafi aukið á sjálfstraust hennar þar sem hann dáist að henni.

Lilja segir í viðtali við Bændablaðið að hún sé afar ánægð með sjálfa sig um þessar mundir. Kærastinn sé alltaf að segja henni hvað hún sé falleg og með flottan rass og meira þurfi hún ekki til þess að gleðjast.

Lilja og Sámur byrjuðu saman í júlí og á hann að hafa þau áhrif að söngkonan hefur lítinn áhuga á skemmtanalífinu um þessar mundir en hún hefur oft verið áberandi í Kaupfélaginu vegna skemmtanahalds undanfarin ár. Söngkonan er 24 ára gömul. Nú dreymir hana bara um að taka því rólega með unnustanum og kaupa hús fyrir utan ys Varmahlíðar með Sámi.


mbl.is Unnustinn hrósar afturendanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband