13.8.2009 | 14:03
Hver eru einkennin?
Hver eru einkenni inflúensa?
Einkenni sýkingar Svínaflensunnar
Algengustu einkennin eru skyndilegur hiti, hósti, hálssærindi, slappleiki, beinverkir og höfuðverkur. Einkennum frá meltingarfærum (ógleði, uppköst og/eða niðurgangur) hefur verið lýst.
Einkenni sýkingar VENJULEGU árlegu flensunnar
Inflúensa er veirusjúkdómur. Einkenni inflúensunnar koma snögglega og eru einkum hár hiti, skjálfti, höfuðverkur, beinverkir, þurr hósti, hálssærindi og nefrennsli. Algeng einkenni hjá börnum eru ógleði, uppköst og kviðverkir. Einkennin geta verið væg en eru þó oftast meiri en í venjulegu kvefi. Í undantekningartilfellum getur sýkingin verið mjög alvarleg með svæsinni lungnabólgu, heilabólgu og einkenni frá fleiri líffærum.
Niðurstaða: Af þessu má sjá að hún er skárri þessi verri.
Átta leikmenn Grindavíkur með einkenni svínaflensu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.