Hahahaha!!! Fréttir eru frábærar

Gæti alveg eins hljómað svona:

Íslensk kona kastaði rauðri málningu í Björgúlf Guðmundsson í Reykjavík. Björgúlfur skaðaðist ekki enda var hann inni hjá sér og verndaður af eldhúsglugganum.

Þetta gerðist 2. ágúst en ekki var sagt frá atvikinu fyrr en í morgun. Konan var handtekin  og gaf þá skýringu að hún hefði verið reið vegna þess að hún fékk ekki 40-60% niðurfellingu skulda. Konunni hefur síðan verið gert að gangast undir geðrannsókn. Henni hefur verið sleppt en Björgúlfur mun væntanlega leggja fram kæru á hendur henni.


mbl.is Kastaði kaffibolla á Monu Lisu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í DV var sagt, að hún hefði hent tebolla og verið þýzk. Nú er konan allt í einu orðin rússnesk og tebollinn orðinn að kaffibolla. Skrýtinn fréttaflutningur.

Ekki yrði ég hissa, þótt einhver kona henti kaffibolla í Björgólf Guðmundsson eða Karl Wernersson eins og þeir hafa leikið landsmenn. Ég myndi ekki ráðleggja þeim að fara niður á Austurvöll í kvöld.

Stebbi (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband