Ekkert kynlíf í vinnunni

Dæmigerð "ekki"frétt og segir ekkert frekar en þessi útgáfa mín.

Jörundur á verkstæðinuJörundur Sveinsson, vélavörður hjá Orkuveitu Álftanesshrepps, segir að það eina sem hann geti ekki fengið í vinnunni sé kynlíf. Orkuveitan hefur verið starfrækt í Álftaneshreppi að undanförnu, og Jörundur segist hafa notið vinnunnar mjög. Þegar hann var spurður að því í viðtali hvort það væri eitthvað sem hann gæti fengið í heima, en ekki í vinnunni, svaraði hann því til að kynlíf væri líklega það eina. Eiginkona Jörundar er vestfirska húsmóðirin Guðrún Sveinbjarnardóttir, en hún er oftast heima í Goðatúni á meðan Jörundur er í vinnunni. Vélavörðurinn segir því að líf verkamannsins geti á köflum orðið ansi einmanalegt.


mbl.is Ekkert kynlíf í Ameríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband