Varð bankinn fyrir Seðlabankanum?

BankahræGrunur leikur á að viðskiptabankinn, sem fannst rekin á Kreppufjöru í síðustu viku, hafi orðið fyrir jafnvægisugganum á Seðlabankanum 12. nóvember s.l. og drepist við það. Óvenjulegir áverkar sáust á stjórn bankahræisins og var talið mjög líklegt að bankinn hefði drepist eftir árekstur við Seðlabankann. Ugginn varð fyrir miklu höggi og skemmdist svo að hann varð óvirkur. Þó sáust engar rispur á ugganum eftir höggið.

Davíð Oddsson, sem er einn þriggja skipstjóra á Seðlabankanum, staðfesti að ein hugmyndin sem menn hafa um ástæður þess að jafnvægisugginn skemmdist sé að Seðlabankinn hafi rekist á banka. Þetta sé þó ósannað. Bankinn sem fannst á Kreppufjöru með áverka ýti þó undir þessa hugmynd. Athuga þyrfti hvort rek hræsins austur á Kreppufjöru gæti staðist miðað við efnahagsaðstæður. Davíð kvaðst það alveg mögulegt miðað við vestanáttir sem voru á þessum tíma.

Jafnvægisuggar eru á báðum síðum Seðlabankans. Þeir eru settir út á siglingu og standa þá um tvo metra út frá hvorri síðu. Davíð var ekki sjálfur um borð þegar jafnvægisugginn skemmdist 12. nóvember. Hann sagði að þegar bankinn átti eftir um 45 mínútur til IMF og var staddur norðan við lánið, hafi menn fundið óvenjulegt högg. Yfirhagfræðingur hafi strax áttað sig á því að jafnvægisugginn stjórnborðsmegin var hættur að virka. Hann stýrist af gíróskópi og er hægt að fylgjast með virkni hans á mælum. Í IMF er lagst að bryggju með stjórborðshlið en það var ekki hægt í þetta sinn og bankanum lagt að með bakborðshliðina. Kallað var á hagfræðing til að vinna við jafnvægisuggann. Þá tókst að draga uggann inn og taka úr sambandi. Davíð sagði haft eftir hagfræðingnum að greinilega hafi orðið mikil átök þegar ugginn skemmdist. Samt sáust engar rispur á málningunni, eins og búast hefði mátt við ef ugginn hefði rekist í eitthvað hart. Þá datt mönnum í hug að ugginn hefði rekist í banka.

Þegar Seðlabankinn var á leiðinni frá IMF 18. nóvember og var kominn norður af gjaldeyrisláni, eftir 45 mínútna siglingu, sá útkíkkið (vaktmaður) eitthvað á reki.

„Fyrst veltu menn því fyrir sér hvað fyrirtæki væri að gera þarna ljóslaust. Þegar nær dró héldu menn að þetta væri hlutabréf sem hefði fallið í banka. Svo datt mönnum í hug að bankaleynd, kúlulán, hefði fallið af fjárfestingabanka eða Sparisjóði. Þetta var svo belglaga. Loks sáum við að þetta var bankahræ. Það maraði mikið í kafi en skuldafylltur belgur, hvort það voru vextir eða ábyrgð, um tveir metrar í þvermál var það sem við sáum fyrst," sagði Davíð. „Þegar ég sá þetta bankahræ á mynd í Mogganum og miðað við lýsingu á hræinu datt mér í hug hræið sem við sáum þann 18. nóvember. Ég hringdi í skipstjórann sem var um borð þegar ugginn skemmdist og þá kom í ljós að þetta gerðist nánast á sömu slóðum og þar sem við sáum hræið sex dögum síðar."

Davíð kvaðst hafa velt því fyrir sér hvers vegna þeir sáu ekki hræið á leiðinni til IMF fyrr um daginn. Hann sagði að talið sé líklegt að bankinn hafi sokkið við áreksturinn en svo myndast skuld í iðrum hans sem fleytti honum upp á yfirborðið. Bankinn hafi verið nýkominn úr kafi þegar þeir á Seðlabankanum sáu hann, næstum á sama stað og áreksturinn varð sex dögum fyrr.


mbl.is Varð hvalurinn fyrir Herjólfi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtileg saga.

Jón (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 14:13

2 identicon

Bwahahahaha ..

Haukur, þú ert óborganlegur. Frábær "fréttaskýring". Endilega haltu þessu áfram.

Kveðja,

Greppur Torfason (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband