29.11.2008 | 12:44
Ekkert kynlíf í vinnunni
Dæmigerð "ekki"frétt og segir ekkert frekar en þessi útgáfa mín.
Jörundur Sveinsson, vélavörður hjá Orkuveitu Álftanesshrepps, segir að það eina sem hann geti ekki fengið í vinnunni sé kynlíf. Orkuveitan hefur verið starfrækt í Álftaneshreppi að undanförnu, og Jörundur segist hafa notið vinnunnar mjög. Þegar hann var spurður að því í viðtali hvort það væri eitthvað sem hann gæti fengið í heima, en ekki í vinnunni, svaraði hann því til að kynlíf væri líklega það eina. Eiginkona Jörundar er vestfirska húsmóðirin Guðrún Sveinbjarnardóttir, en hún er oftast heima í Goðatúni á meðan Jörundur er í vinnunni. Vélavörðurinn segir því að líf verkamannsins geti á köflum orðið ansi einmanalegt.
Ekkert kynlíf í Ameríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fréttahringl | Breytt s.d. kl. 12:47 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.