16.11.2009 | 00:59
Fór á Kost(um)
Ég er nú bara ánægður með Jón Gerald. Fórum í dag að versla þarna og þetta er fín verslun. Kannski ekki að undra að eitthvað vanti fyrstu dagana, en hann fær sitt tækifæri til að dafna.
Kostulegt að sjá og heyra í fólki sem leggur Kost saman við Bónus hvað verð og úrval snertir. Bónus með tuttugu ára reynslu, fjölda verslana um land allt, með innflutning og aðföng í einum potti með Hagkaup og 10/11. Og 20 ára lágt verð er að skila sér í þjóðarbúið í formi skuldaafskrifta. Ekki mikil samlíking þar
En Melabúðin og Fjarðarkaup hafa staðið uppúr í öllu ruglinu, og nú Kostur.
Um 5000 lögðu leið sína í Kost | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.