14.10.2009 | 14:37
Af hverju svona lítil munur
Af hverju er svona lítill munur á mannaðri bensínstöð, og mannlausri?
Venjulega bara 1 króna og sextíu aurar !!
2 krónu afsláttur af bensínlítranum var 2,5 prósent fyrir nokkrum árum, meðan að í dag er 2 krónu afsláttur af bensínlítranum rétt rúmlega eitt prósent. Falin launarýrnun hjá okkur sem vinnum sjálf á planinu?
Það tekur því ekki lengur að dæla sjálfur, og því loks kominn grundvöllur fyrir því að manna allar stöðvar á ný.
Aldrei aftur vesen með pin númer, standa úti í kuldanum og rokinu.
Við eigum að heimta mannaðar bensínstöðvar alls staðar.
Starfsmann á Planið!!
![]() |
Aukinn munur á bensínverði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.