6.4.2009 | 13:20
Opin fyrirspurn til Margeirs og MP banka
Kæri Margeir og MP banki,
Ég er einn þeirra sem fæ pening útborgaðan um hver mánaðarmót, og langar ekki að setja hann í svartholin þrjú sem í boði eru þessa dagana. Mig sárvantar banka til að eiga viðskipti við. Hvað þarftu marga viðskiptavini með launareikninga og sparnað til að amk eitt útibú standi undir sér?
Ég vil frekar ef illa fer, sjá eftir peningunum mínum til MP banka.
Bíð spenntur með veskið og sparibaukinn!!
Allir aðrir áhugasamir endilega setji nafn sitt í athugasemdir
Óttast áhlaup á Kaupþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mikið ofboðslega er ég sammála þér. Margeir P. er snillingur í mínum huga og nægjusamur maður. Engin græðgi í gangi. Er sjálfur í KB og er fastur þar. KB er algjörlega ömurlegur andskotans banki
Stefán Erlendsson
Garðabæ
sterlends, 6.4.2009 kl. 13:55
Haldið þið virkilega að MP sé í einhverri góðgerðarstarfsemi? Auðvitað er það gróðavonin sem knýr hann áfram, ekkert annað.
Frú (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 14:22
http://www.youtube.com/watch?v=_6J0BDeGvqU&eurl=http%3A%2F%2Fatvinnulaus%2Eblog%2Eis%2Fblog%2Fatvinnulaus%2F&feature=player_embedded
Magnús Sigurðsson, 6.4.2009 kl. 17:50
Takk Magnús,
Þetta bjargaði deginum
Haukur Baukur, 6.4.2009 kl. 20:25
Það er Inga Jessen "atvinnulausa konan" sem á heiðurinn af því að setja þetta video á mbl bloggið. Það hafa fáir bloggarar gert töpuðum sparnaði eins góð skil og hún með eigin reynslusögum á blogginu sínu.
Ég biðst afsökunar á því að hafa ekki getið þessa í athugasemdinni sem ég lét þessa slóð fylgja með.
Magnús Sigurðsson, 7.4.2009 kl. 06:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.