Þingmaður uppvís af fjármálahneyksli

FimmþúsundkallinnÞingmaður Íslenska Vinstri hægrimannaflokksins, Njáll Grímsson, reynir nú allt til þess að bjarga hjónabandi sínu eftir að slúðurblað birti mynd af honum með óþekktum fimmþúsundkalli í gær. Njáll var uppvís að því að hafa notað skrifstofu sína í þinginu til ástarfunda við kallinn.

Njáll, sem er fyrrum ráðherra og vinur Gríms Hárgel forsætisráðherra, hefur beðist afsökunar á framferði sínu. Las hann upp yfirlýsingu fyrir fjölmiðla fyrir utan heimili sitt í Kópavogi í dag og sagði meðal annars að hann skammaðist sín fyrir hegðun sína sem hafi verið farið langt út fyrir eðlileg velsæmismörk. Sagðist hann ekki muna eftir viðkomandi kvöldi en það bæti ekki fyrir hegðunina. 

Eiginkona hans til þrjátíu ára, Sigurlaug, er sögð dvelja hjá vinum eftir að hafa frétt af fjárhaldinu um helgina. Grímur var svaramaður Njáls þegar þau gengu í hjónaband, samkvæmt frétt á vef mbl.is.  

Njáll, sem er þingmaður Kragans, á yfir höfði sér bankaleynd vegna málsins. Samkvæmt reglum þingsins er þingmönnum gert að þegja á þann hátt að það valdi ekki þinginu vansæmd.

Vinir þingmannsins telja að hann hljóti að hafa setið á sumbli þennan dag með fimmþúsundkallinn sem sést með honum á myndinni sem dv.is birti í gær. Á einni myndinni sést fimmþúsundkallinn, liggja á bunka af skjölum sem merkt eru sem trúnaðarskjöl.


mbl.is Þingmaður uppvís af kynlífshneyksli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband