Aftur hætt saman?

snv31907.jpgAðeins nokkrum dögum eftir að þau birtust í faðmlögum í stigaganginum í Æsufellinu eru þau hætt saman. Allt virtist loksins ganga í haginn hjá Þórhildi Jensdóttur og Hans Péturssyni eftir að þau höfðu hætt og byrjað saman nokkrum sinnum undanfarið ár en þau voru ekki lengi í paradís.

Að sögn heimildarmanns Fellapóstsins urðu þau ósátt í seinustu viku og ákváðu að hætta að hittast. „Tóta heldur áfram með líf sitt eins og hún gerir alltaf og virðist hamingjusöm með það,“ segir Hans.

Sagt er að Hans hafi sagt Þórhildi upp eftir að hún kom úr kynningarkvöldi á pottasetti sem hún fór á með saumaklúbbnum fyrstu vikuna í mars.

Þórhildur og Hans hættu seinast saman í ágúst 2008 en byrjuðu aftur saman er leið á haustið og virtust vera mjög hamingjusöm undanfarna mánuði.


mbl.is Aftur hætt saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ekki svo viss um að hún Tóta sé eins hamingjusöm og Hans vill láta í veðri vaka. Ég spái því að þau byrji aftur saman á haustmánuðum. 

kveðja Rafn

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 06:35

2 Smámynd: Karl

Nákvæmlega, Haugurinn! Who gives a sh**?

Karl, 16.3.2009 kl. 09:27

3 Smámynd: Kolla

LOL               ég er svooooo sammála ykkur.

Kolla, 16.3.2009 kl. 10:45

4 identicon

Mannlegur harmleikur

Oná kreppuna og allt annað. Ég get ekki meir

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 14:57

5 identicon

Uss! hann Hansi hann var búinn að daðra við þær allar á stigaganginum. Móðursystir mágkonu frænku minnar býr í þessari blokk!!!

gunna (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 17:26

6 Smámynd: Haukur Baukur

hahahahahaha!!!

Vissi það, vissi það!!

Haukur Baukur, 16.3.2009 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband