Merkileg grein

 Friðbjörn Orri Ketilsson

Friðbjörn Orri Ketilsson skrifaði merkilega grein á AMX í gær, og ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka henni.

  Drengurinn hefur ýmislegt gott til málana að leggja. Til dæmis að það er ekki öll þjóðin sem heimtar svör heldur “bara” 5000 manns. Fleiri borða fisk og halda með hálendinu, og enn fleiri standa með samkynhneigðum.

Við þurfum þó ekkert að óttast. Friðbjarnarmenn eru menn málefnalegra röksemda, lýðræðis og friðar. Og þar sem það er bara 1,4% þjóðarinnar sem heimtar upplýsingar, þá er það varla vinnunnar virði að svara með málefnalegum röksemdum. Og þar sem aðeins 1,4% þjóðarinnar er ósátt, er það varla ógn við lýðræðið né friðinn. 98,6% þjóðarinnar er að borga reikningana í ró og næði og hefur ekkert spurt af hverju allt hækkaði.

Samt er það ofbeldi og ofsóknum 1,4% þjóðarinnar að kenna að lýðræðisleg meirihlutastjórn féll frá völdum.

Það var ofbeldi á götum Reykjavíkurborgar sem knésetti einu vitrænu stefnuna sem þetta land gæti farið.

Og vonin okkar, einn af klettum þjóðarinnar, Davíð Oddsson, sem hefur staðið vörð um okkur öll, stendur óbugaður í lappirnar á móti þessu óréttláta ofbeldi og ofsóknum fárra.

Mig grunar að FOK hafi ekki skrifað þessa grein til að hylla Davíð, heldur vegna þess að hann óttast að þjóðin gerir eins og “ný”frjálshyggjan hefur kennt henni. 98,6% þjóðarinnar virðist málefnalega, lýðræðislega og friðsamlega sitja heima og þegja meðan 1,4% þjarmar að DO.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óskaplega er hann aumur vefurinn sem spunninn er af ómeðvitund siðblindingjanna - AMX.

Greppur Torfason (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 10:48

2 Smámynd: Haukur Baukur

Hahaha!!

Já, svei mér þá ef AMX er ekki svolítið einhliða

Haukur Baukur, 15.2.2009 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband