Tökum húmorinn í þetta

Því miður tel ég að grunnmistök ríkisstjórnar hafi verið að þegja eða kveða hálfkveðna vísur. Leysa ekki vandann á yfirvegaðan hátt og gæta þess að reiðin magnist ekki. Til dæmis með upplýsingum sem róa þjóðfélagið, snögg viðbrögð við grunsamlegum viðskiptum í bönkum, ráðherrar taki ábyrgð á gjörðum sínum og fleira.

En ef þeir gera það ekki þá verðum við að gera það.

Nú finnst mér að við ættum að draga upp landsfrægan húmorinn í aðgerðum okkar.  Snúum blaðinu við.

Hjartanlega sammála HErði þegar ég segi að við eigum að hafa hemil á okkar eigin fólki. Ofbeldi er ekki hluti af mótmælum okkar, heldur reiðin. Reiði er skiljanleg , en ofbeldi ekki. 

Sýnum yfirvegun og stöndum saman.  Notum á stjórnvöld sömu meðul og við höfum fengið. 

Yrðum ekki á þau og förum að leika okkur eins og við höfum engu að tapa.

  • Sýnum reiði okkar í skoðanakönnunum. Allir sem einn eiga að neita að kjósa flokka.  Þegjum yfir pólitískri afstöðu.  Gerum fylgi flokka NÚLL. Styðjum Nýtt Ísland.
  • Hættum að skemma og ógna við Alþingi og Stjórnarráð.  Það er olía á eldinn fyrir valdstjórnina.  Færum þeim frekar gjafir. Til dæmis eitt lítið blóm eða kerti eins og við minningarathafnir. Gerum valdstjórninni erfiðara með að nota lögregluna gegn okkur. 
  • Það er engin reiður út í bílinn þegar ökumaðurinn keyrir fullur.  Verndum lögregluna og sýnum þeim virðingu, EKKI ofbeldi. Heilsum þeim með handarbandi og segjum þeim að við séum bara að endurgjalda vanvirðingu stjórnvalda og okkur þyki leitt að þeir þurfi að standa þarna.  Hvetjum þá til að leggja frá sér skildina og koma að spjalla. 
  • Látum reiðina bitna á spilltum bönkunum til dæmis með því að taka út allan peninginn okkar, hætta að nota debit og kreditkort og þannig hætta að "gefa" þeim færslugjöldin.  Meira að segja hægt að svelta bankana um afborganir.  Sýnum að við viljum ekki og neitum að notast við óbreitt fjármálakerfi.
  • Fáum óhlutdræga hagfræðinga til að benda okkur á hvaða banki er minnst spilltur, og færum öll okkar viðskipti þangað. Tökum veltuna frá verstu spillingunni.
  •  Mótmælum. Mætum á öll mótmæli og tökum vini okkar með. Fjöldinn segir meira en nokkur orð.  Samstaða segir meira en nokkur orð.  Gætum þess að sýna stillingu og yfirvegun.  Stjórnvöld hafa mætt okkur með þögn og bjóða okkur ofbeldi gegnum lögreglu. Sýnum að við erum meiri mannsekjur.

Látum reiðina bíta, en látum hana bíta spillinguna.  Húmorinn er málið.

 


mbl.is „Við viljum ekki ofbeldi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

APPELSÍNUGULUR ER LITURINN..FYLLUM BÆINN Í DAG OG VERUM APPELSÍNUGUL OG BERJUMST GEGN ÓRÉTTLÆTI OG PSILLINGU VALDHJAFA..EKKI GEGN LÖGREGLUNNI SEM ÆTTI NÚ AÐ SKIPA SÉR MEÐ OKKUR GEGN GLÆPAGENGINU.

we are all in this together.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 12:24

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Takk fyrir þetta Haukur.  Ég tek svo sannarlega undir þessar hugmyndir þínar.  Þær yrðu svo margfallt áhrifameiri en þau ólæti sem nú eru í gangi.  Það er einhver heilaskemmd í gangi hjá þeim einstaklingum sem ráðast að lögreglunni við þessar aðstæður. Þeir eru ekkert að hugsa um þjóðfélagið. Þeir virðast bara upplifa tækifæri til að koma af stað uppþotum og skemmdarverkum.

Tillögur þínar eru beittar og skemmtilegar. 

Guðbjörn Jónsson, 22.1.2009 kl. 18:07

3 identicon

Það er villtur lýður sem ræðst á lögreglumenn og veldur skemmdum.  Og það fallegasta sem ég man eftir lengi var að sjá í fréttum RUV friðsama mótmælendur stillta upp sem vegg fyrir framan lögreglumenn þeim til varnar.  Það fólk á heiður skilinn. 

En ég spyr þig Haukur þar sem þú virðist viti borinn: Geta kjósendur losnað við að kjósa flokka og kosið bara fólk?   

EE (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband