8.12.2008 | 17:12
Alvarleg aðför að Svalaskoðunum
Elding Svalaskoðun í Reykjavík segir, að kvennaveiðikvóti í hjúskaparskyni, sem gefinn var út í dag, sé alvarleg aðför að Svalaskoðun á Höfuðborgarsvæðinu. Krefst fyrirtækið þess að stjórnvöld endurskoði ákvörðunina.
Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir, að Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök svalaskoðunarfyrirtækja hafi undanfarið fundað með dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra og ráðherra ferðamála, sem hafi lýst áhuga sínum á að gæta hagsmuna svalaskoðunarfyrirtækja og ferðaþjónustunnar. Þau orð séu marklítil nú.
Ljóskur er helsta söluvara í svalaskoðunarferðum í Reykjavík ásamt gellum, gliðrum og dökkhærðum femínistum sem einnig sjást í sumum ferðanna. Talsmaður kvennveiðimanna fullyrðir að 80 til 90% ljósknana verði veiddar á höfuðborgarsvæðinu sem mundi stofna okkar fyrirtæki í stórhættu. Á síðasta ári tókum við á móti rúmlega 50.000 ferðamönnum og erum þar með í hópi stærstu ferðaþjónustuaðila landsins. Þessi ákvörðun dómsmálaráðherra er mikið reiðarslag fyrir okkar starfsemi," segir í tilkynningunni.
Þá segir, að fullyrðing talsmanns kvennaveiðimanna um að aldrei hafi verið líflegra en nú í Reykjavík sé dæmi um rangfærslur og áróður kvennaveiðimanna þar sem sannleikurinn sé sá, að lífið í Miðbænum sé með minnsta móti og áberandi lítið af Ljóskum. Það sé líka í samræmi við niðurstöður úr svalatalningu Manneldisráðs síðastliðið sumar sem af einhverjum ástæðum hafi ekki verið haldið hátt á lofti.
Fulltrúi dómsmálaráðuneytisins hefur nú beðið stjórnanda Eldingar Svalaskoðunar í Reykjavík um upplýsingar um áætlaðar skoðunarferðir til að geta veitt í góðri samvinnu við fyrirtækið. Það þykir okkur ógnvekjandi og bendir óneitanlega til að ætlunin sé að sæta lagi og veiða á milli svalaskoðunarferða," segir í tilkynningunni.
Flokkur: Fréttahringl | Breytt 9.12.2008 kl. 10:42 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.