2.11.2008 | 23:13
Framtíðarpælingar
Stærstu fyrirtækin í byrjun árs 2016 eru húsfélögin Austurbrún 2 og 4, og Húsfélagið Torfufelli 7. Þar sem Húsfélagið Torfufelli er með mestu eigin eign milli ára, og hefur nýlega endurfjármagnað fjórar þvottakonur. Þvottasnúrurnar sem umhvefissinnar mótmæltu í apríl síðastliðnum munu greiða sig upp á fyrsta ársfjórðungi.
Samrunaviðræður milli Húsfélaganna í Austubrún er vel á veg komið og er ljóst að rísa mun nýr risi á húsfélagamarkaðnum. Nýleg yfirtaka Austurbrún 4 á Húsfélaginu í Norðurbrún 8 hefur aukið eign félagsins á þvottasnúrum og klemmum um 56% og er það töluverður viðsnúningur frá síðasta ársfjórðungi.
Íbúar í Norðurbrún 4 og 6 óttast að Austurbrún 2 og 4 nái nú með sérstöðu sinni á leigumarkaði tökum á allri dreifingu þvottaefnis í vogahverfi og biðla til ríkisstjórnar að grípa inní með löggjöf.
Viðskiptaráðherra biður almenning um að lágmarka notkun á "I ow You" miðum til að vega á móti aukinni verðbólgu í landinu. Bubbi Morthens Seðlabankastjóri segir jafnframt að næsta úthlutun gjaldeyris verður 15 janúar næstkomandi, mánuði fyrir komu vorskipsins.
Flokkur: Spaugilegt | Breytt 28.11.2008 kl. 16:54 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.