Siðleysið og reiðin

Ég áttaði mig ekki á því strax, en mér fannst þetta vera eitthvað skakkt.  Kona er sökuð um ósiðlegt framferði fyrir það eitt að fara úr fötunum og detta í götuna og gæti verið sektuð um 64 þúsund krónur fyrir dónaskapinn. 

Á sama tíma í glerhýsum um allar koppagrundir fá bankamenn og fjárglæframenn, sem marga mætti senda beint í spilafíknarmeðferð, niðurfellda milljarða af skuldum.  Þeir fá illt auga og umtal fyrir að velta skuldunum á almenning og þannig hrifsa heimili og atvinnuöryggi af hundruðum ef ekki þúsundum fjölskyldna með braski sínu.  Ekki fer mikið fyrir kærum um ósiðlegt framferði þar.

Ástæðan gæti verið að fjármálahneykslið er gert svo flókið að enginn almennur skilur það og nær að verða reiður á réttlætanlegan hátt.  Við fáum bara að sjá eitthvað svo flókið og hræðilegt og svo stórt að enginn veit við hvern á að sakast samkvæmt viðmiðunarreglum samfélagsins.  Flestir geta bara gefið bankanum illt tal án þess að geta losað reiðina fyrir alvöru.

En samfélagið gefur okkur síðan leyfi til að reiðast konu sem stripplast í miðbænum.  Djö... dónaskapur fyrir framan börnin. 

Það sorglegasta er að þetta gerist út um allt, inn á hverju heimili.  Eitthvað atvik fyllir mælinn, ruggar bátnum, potar í spenntar taugar og losar viðkvæmar tilfinningar. Barn sullar niður mjólk, unglingurinn skilar ekki glasi í vaskinn, konan hefur ekki tíma til að hlusta á þig, kallinn nennir bara að horfa á fréttir....

...og þá losnar reiðin sem bankakerfið byggði innra með þér.

 


mbl.is Söngkona ákærð fyrir ósiðlega framkomu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

...og þá losnar reiðin sem bankakerfið og siðlausir lögtæknar byggðu innra með þér.   Rétt hjá þér, en mér sýnist stúlkan vera beinasleggja og lítið augnayndi fyrir karlmenn og það er kannski þessvegna sem hún hefur verið kærð!

V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 22:46

2 Smámynd: Teitur Haraldsson

Siðgæðisvitund Bandaríkjamanna er svo sjúk og röng að það er beinlínis orðið þeim og reyndar öllum hættulegt.

Teitur Haraldsson, 3.4.2010 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband