Stórglæsilegt afrek

Þetta er allt samkvæmt pöntun, held ég.

Heimilin:

"Mikilvægt er að bæta stöðu skuldsettra heimila. Í því skyni mun ríkisstjórnin hraða vinnu ráðherranefndar sem fjallar um stöðu þeirra. Þar verði m.a. lögð áhersla á að tryggja að þau úrræði sem þegar hefur verið komið á gagnist, eins og vænst var."

Fokk!! Hefur þetta ekki verið að virka eins og vænst var?


Endurreisn atvinnulífsins og samfélagsleg ábyrgð

"Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins móti sameiginlega viðmið sem fylgt verði við endurreisn atvinnulífsins og aðkomu opinberra aðila að atvinnustarfsemi og eignarhaldi fyrirtækja. Í þessu starfi verði m.a. stuðst við viðurkenndar innlendar og erlendar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja."

Þýðir þetta að fyrirtæki og atvinnurekendur sem eru farnir á hausinn fái að ráða hvernig ríkið tekur fyrirtækin yfir?    Er þetta "Samfélagslega ábyrgðin", það sem kallað er "að halda stólunum"?

Bankarnir:

"Eigendastefna ríkisins gagnvart bönkunum feli í sér að erlendir aðilar geti eignast meirihluta í einhverjum nýju bankanna og eftir atvikum öðrum fjármálafyrirtækjum. Þannig verði m.a. reynt að tryggja eðlilegan aðgang að erlendu lánsfé fyrir atvinnulíf og heimili."

 

Enginn niðurskurður í bönkunum? Hvað myndi sparast á að til dæmis loka einum þeirra?  Neibb. Þetta er söluvara. Öllu til kostað.

Ríkið myndi blómstra ef bankarnir færu á hausinn og lokuðu.  Í staðinn er skorið niður í menntamálum og heilbrigðismálum, og ekki gleyma mörghundruðmilljóna króna mokstur í tónlistarhúsholuna. 

Allir eiga að halda áfram að borga, að öðrum kosti borinn út og ættin tekin til skiptana.  Enginn fær grið, því bankarnir eru til sölu og verða að líta vel út!!!

 Og hvað svo?....

"Æjj, kommon herra Erlendur Auðvald. Þú átt bankann núna. Viltu lána?.... Plís, plíssss???"


mbl.is Til hamingju með sáttmálann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjóst svo sem við þessu

...

dýrari tjón á milli ára

Dýrari tjón á milli ára eru klassískar afsakanir þegar hækkuð eru iðgjöld á ökutækjatryggingum hjá tryggingafélögum. Nú get ég sagt að sú afsökun mun ekki halda næst þegar tryggingafélög ætla að hækka. Spennandi að sjá hvaða afsökun þeir geti notað...

Hún er þó skárri en húðflúrarinn

...

Innlánsreikningarnir of stórir

Bankastjóri Landsbankans með Icesave á pallinum keyrði fyrr í dag inn á lánamarkað Hollands þannig að Icesave reikningarnir rákust upp í áreksturvörn á bita yfir inngangi markaðsins. Ekki er nógu hátt til lofts á markaðnum svo troða megi svo háum...

Auðvaldið vantar peningana þína!!!

Nú er uppi sú staða að þeir sem eiga pening, eru ekkert gjarnir á að nota mikið af honum. Fólk er farið að hamstra leggja til hliðar. Geyma til krepputímanna. Þá er svo merkilegt að sjá slagsmálin um peningana okkar. Allar aðgerðir sem bankar koma með...

Óskilasmámunir

Það er ekki svo slæmt að hringt sé í gæludýraverslunina í leit að sundskýlum og handklæðum. Það er öllu verra sem ég heyrði um fjölskylduna sem mætti í Vatnaveröld og fóru að skoða í heitu pottana. Börnin heimtuðu svo afann í köflóttu skýlunni....

Fjármagnssaga

Þessi saga gerðist í niðurníddu kvótalausu krummaskuði á Íslandi. Hér segir hvernig innistæðulaus tékki bjargaði fjárhag þorpsins. Það kom forríkur Sheik í þorpið og bókaði svítuna á sveitahótelinu í viku. Hann borgaði með 1.000.000 kr ávísun í...

Lánasöfn Landsbankans verðlaus eða verðlítil

Grein af efréttir.is Lánasöfn Landsbankans verðlaus eða verðlítil Eigum við ennþá að sætta okkur við ICES(L)AVE ??

Endurhverf viðskipti ??

Las eftirfarandi frétt á visir.is: Rannsóknarnefnd Alþingis skoðar töpuð útlán Seðlabanka Íslands, upp á 350 milljarða í endurhverfum viðskiptum, á síðustu dögunum fyrir hrunið. Tryggvi Gunnarsson nefndarmaður staðfestir þetta. Ég er ekki mikill...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband