31.10.2009 | 01:18
Fjarlægðu þingmann vegna heiðarleika
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti að fjarlægja þingmann úr þingsal á Alþingi eftir að þar kom upp heiðarleiki. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var þar mikil og sterk sannleikslykt og þurftu slökkviliðsmenn að fara í hlífðarbúnað svo hægt væri að fara inn og fjarlægja þingmanninn.
Öðrum þingmönnum varð ekki meint af og þurfti ekki að flytja neinn á sjúkrahús til athugunar en hættulegt getur verið að anda að sér sannleika.
Fjarlægðu ísskáp vegna ammoníaksleka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fréttahringl | Facebook
Athugasemdir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 31.10.2009 kl. 01:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.