7.10.2009 | 13:15
Öfunda ekki Steingrím
Já, það er ekki þægindalífið að vera hann Steingímur J þessa dagana.
Sem sérstakur gestur SÁÁ á stórfundi þeirra í Háskólabíói kvöld kl 20, virðist hann þurfa að hlaupa út af miðjum fundi og setjast á annan erfiðan fund. Vona að hann þurfi ekki að afboða, heldur láti sjá sig, þó ekki nema í nokkrar mínútur, og slái skjaldborg um áfengis- og vímuefnameðferðina með öðrum fundargestum.
Svo má hann hlaupa til og slá skjaldborg um VG.
En þú ert líka velkomin(n) í kvöld, og ég skora á þig að bjóða vinum og vandamönnum með á fundinn.
Tónlist í hæsta gæðaflokki
- Agent Fresco
- Retro Stefson
- Einar Ágúst
- Jóhann Friðgeir og Jónas Þórir
- Karlakórinn Fóstbræður
Fundarstjórar verða Solla Eiríks og Tolli Morthens
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
Látum hendur standa fram úr ermum.
![]() |
Þingflokkur VG fundar í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.