26.5.2009 | 12:47
Peningaveiðar hafnar
Peningaveiðiveiðimenn á Kaupþing ÁR 2009 leystu landfestar um hádegisbilið en Kaupþing er fyrsti fjárveiðibáturinn sem fer til peningaveiða í sumar. Tveir aðrir bátar munu einnig veiða peninga í sumar en heimilt er að veiða eitt hundrað milljarða á veiðitímabilinu.
Í gildi er reglugerð um tvö peningaskoðunarsvæði og eru þau annars vegar í eignum einkavina stjórnmálamanna og hins vegar í vasa útrásarvíkinga og skráðum eignum þeirra. Á þeim verður með öllu óheimilt að stunda peningaveiðar.
Á bilinu 15 til 20 manns frá fimm umhverfissamtökum mótmæltu peningaveiðum Íslendinga fyrir framan íslenska sendiráðið í London í dag. Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra bauð fulltrúum samtakanna inn á sinn fund þar sem hópurinn afhenti sendiherranum bréf þar sem andstöðu er lýst við veiðarnar. Sögðust þeir vonast til þess að íslensk stjórnvöld muni endurskoða ákvörðunina.Haldið á hrefnuveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fréttahringl | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.