10.3.2009 | 23:31
Sería 73, þáttur 137
Gamla fólkið á Hrafnistu var himinlifandi. Einhverra yndislegra hluta vegna var Leiðarljós sýnt í sjónvarpinu og klukkan langt gengin í tíu. Að vanda voru einhverjir nýjir leikarar í standard hlutverkunum.
Skemmtilegast fannst þó gamla fólkinu að það var búið að talsetja Leiðarljós á íslensku. Það var bæði merkilegt og ánægjulegt því nú geta allir fylgst með. Allir geta nú séð að söguþráðurinn sá sami eftir 70 ár í sjónvarpinu. Lýgi, drama, bakstungur, framhjáhöld og lélegir brandarar.
Pétur gamli rær sér fram í stólinn og segir rámri röddu
-"Stelpur. Sá sem leikur Frank Cooper er nú ansi líkur honum Geir okkar Haarde"
-"Suss!! Bansettur klækjarefurinn, Cooper" svarar einhver þóstulega.....
Umræðu um stjórnarskrárfrumvarp frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fíflaskapur | Breytt s.d. kl. 23:42 | Facebook
Athugasemdir
LOL, nokkuð góður þarna bara....
Heimir Tómasson, 11.3.2009 kl. 08:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.