5.3.2009 | 14:31
Ekkert hik á dómsmálaráðuneyti
Eldsnöggir að skella í lás enda stórhættulegir ákveðinn hópur á ferð.
Ekki virðist af þessu að dæma að dómsmálaráðuneytið skynji neina ógn af útrásarvíkingunum og, samkvæmt skoðanakönunum, stjórnendum og eigendum banka, sem spranga frjálsir og glaðir um víðan völl með rass**** (vasana ) fulla af peningum. Auðvitað ekki. Þeir eru ekki bendlaðir við glæpi.
Þeir heilluðu bara heila þjóð með glingri, og rændu öllu steini léttara á meðan. Ræna reyndar enn, því lánastofnanir soga til sín eignir fólks og fyrirtækja í "nafni" innheimtu skulda.
Komið í veg fyrir komu hættulegs hóps | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fíflaskapur | Breytt 7.3.2009 kl. 14:36 | Facebook
Athugasemdir
Það á eftir að rannsaka mun betur hverjir stóðu að hruninu á íslandi til að við getum nokkuð sagt um hvað eigi að gera í því máli.
Hells Angels eru aftur á móti stórhættuleg glæpasamtök eins og ég fer yfir í færslu á síðu minni.
Því er þessu ekki saman að jafn.
Hilmar Gunnlaugsson, 5.3.2009 kl. 15:59
Hilmar!!
Ef þú hefur ekki tekið eftir því að flestar færslur hjá honum Haugi eru uppfullar af kaldhæðni og gríni. Hann er þekktur fyrir það að snúa hlutunum á hvolf og hrista einhverja vitleysu út úr þeim.
Þannig að farðu af þinum há hesti og fáðu þér Pony hehe.
Haukur þú ert snillingur
Rikkinn
Rikki (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 11:15
Hilmar: Hver er hættan sem fylgir því að bjóða norðmönnum í kjötsúpu á laugardagskvöldi? Tilefnislaus metangasárás í miðbæ Reykjavíkur?
Rikkinn: Takkþú líka!!
Haukur Baukur, 7.3.2009 kl. 13:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.