Fagna falli krónunnar

Útrásarvíkigar heims eru væntanlegir til Íslands í dag til þess að fagna því að tvö ár eru liðin frá falli íslensku krónunnar. Fallið markaði upphafið á endalokum sparifjáreignar almennings. Búist er við þúsundum stjórnmála og bankamanna á götum höfuðborgarinnar til þess að fagna tímamótunum. 

Aðal hátíðarhöldin verða við Valhöll, en hún hefur verið táknmynd sameiningar ný-frjálshyggjunnar frá árinu 1990. Risastórum dómínó-kubbum verður velt við til þess að sýna á táknrænan hátt hvernig ríkisrekin fyrirtæki og stofnanir féllu hver á fætur annarri í hendur fárra frá árinu 1989.  Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. 

Stjórnvöld á Íslandi reistu verðtryggingu árið 1979 umhverfis almúgan. Verðtryggingunni var komið upp til þess að hindra verkamenn í því að flýja þrældóm kapítalismans. Hindruninni var óvænt rutt úr vegi þegar umferð um erlend lánaviðskipti var gefin frjáls árið 2002 í kjölfar einkavæðingar bankanna sem staðið höfðu í nokkrar vikur. Hannes Hólmstein, liðsforinginn fyrrverandi, sem gaf út yfirlýsingu sem almennt er talin hafa leitt til falls ríkiseigna, hefur viðurkennt að hafa misskilið flokksforingja sinn, Davíð Oddsson, þegar tilkynna átti um nýjar gjaldeyrisreglur fyrir íslendinga. 

Ólafur Ragnar, forseti, sem ólst upp á Íslandi mun stýra hátíðarhöldunum í dag. Í síðustu viku lét hann hafa eftir sér að fall ríkiseigna hefði verið „ánægjulegasti dagurinn í nýlegri sögu Íslands.“

Meðal þeirra útrásavíkinga sem von er á til landsins eru Hannes Smárason, Björgúlfur Thor, Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson.


mbl.is Falli múrsins fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþing innkallar Milljarða króna

Kaupþing, stærsti peningaframleiðandi Íslands, hefur innkallað um 1400 milljarða í skuldabréfum vegna framleiðslugalla. Kaupþing segir að gallinn sé að almúginn fékk óvart í hendur bréf sem hægt er að afskrifa og að skuldabréfaeigendur séu hvattir til að...

Fjarlægðu þingmann vegna heiðarleika

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti að fjarlægja þingmann úr þingsal á Alþingi eftir að þar kom upp heiðarleiki. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var þar mikil og sterk sannleikslykt og þurftu slökkviliðsmenn að fara í hlífðarbúnað svo hægt væri að...

Sýkingar í stjórnkerfinu?

Ætli það verði hægt að bólusetja við þessum sýkingum: • Ingvi Örn Kristinsson er aðstoðarmaður Félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, en hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans . Einnig starfar hann sem ráðgjafi Forsætisráðherra....

Fleiri mínútur með börnunum í "kreppunni"

Það er deginum ljósara að þetta er vegna þess að fleiri og fleiri fjölskyldur eru að segja upp áskriftum á sjónvarpi og interneti, og draga fram gamla útvegsspilið, taflið og gítarinn. Sum börnin eru jafnvel að kynnast foreldri sínu sem þau þekktu áður...

Ekkert athugavert við þetta

Ef fréttin er rétt, þá fóru þessir heiðursmenn að rífast áður en til átaka kom. Þá liggur ljóst við að annar var ekki sammála hinum, og hvorugur var reiðubúinn að láta undan skoðunum sínum. Þegar hvorugur vill bakka, má samt leysa þann hnút, en þá á þann...

Michael Hudson ræðir um Ísland

(Margmiðlunarefni)

Merkileg þversögn

Ef fréttin er rétt þýdd og staðfærð, þá má sjá ansi merkilega þversögn í henni. "Í viðtali við útvarpsþátt í Ástralíu sagðist Michael ekki ætla að gefast upp fyrr en Lindsay nær tökum á lífi sínu á ný. Hann telur að dæma ætti hana í eiturlyfjameðferð, og...

Hvað á maðurinn við?

"Gera þarf ýmsar breytingar á löggjöf..." Löggjöfin sem viðskiptalífi var ætluð er víst ekki nógu góð. "...ef aukinn árangur á að nást við sakfellingar .. ." Eftir ár í rannsókn á líklega stærsta bankasvindli sögunnar er enginn árangur. Engir með stöðu...

Margt verra en þetta í boði

Webster Tarpley

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband