Já, Ísland eyðileggur hjónabönd

Íslenskur  millistjórnandi í áhættustýringadeild banka sakar íslensk yfirvöld  um að hafa eyðilagt hjónaband sitt og haldið honum frá eignum sínum. Hann sótti á sínum tíma um fleiri lán til hlutabréfakaupa í fyrirtækjum á Tortola en var synjað. Í framhaldi af því sótti kona hans um skilnað en maðurinn heldur því fram að það hafi verið vegna þess að henni hafi verið lofað nýju glingri ef hún skildi við hann.

Millistjórnandinn er lausafjárveill og með kreditkort. Hann býr í einbýlishúsi sem Gamli Kaupþing-banki útvegar honum en hann lætur auk þess færa honum mat.

Sigurður Einarsson fjármálagúrú sem hefur aðstoðað manninn segir að fjármálayfirvöld hafi rekið málið mjög harkalega. Hann fái hvorki að tala við né hitta eigur sínar. Það sé ekki eðlilegt að meðhöndla manninn eins og sakamann þótt það komi upp bankahrun.

Skilnaðarmáli hjónanna var áður vísað frá dómi þar sem þau eru ekki í Sjálfstæðisflokknum, en Héraðsdómur hefur samþykkt að taka málið fyrir aftur þann 20. mars.

Í millitíðinni búa eiginkona hans og eigur í athvarfi Gamla Kaupþings í Luxemburg.  Þar fengust þær upplýsingar að yfirvöld hefðu ekki reynt að hindra umgengni.  Að öðru leyti væri beðið þess að málið gleymdist.


mbl.is Ísland eyðilagði hjónabandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 13.3.2009 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband