Seinir umsækjendur eða fljótfær atvinnurekandi

Hann er að mínu mati ansi bráður að byrja að kvarta í dag, fjórum dögum eftir að auglýsingin birtist og tíu dagar eftir af umsóknarfrestinum sem er til 24.maí. Réttara væri að virða rúma umhugsunartímann sem hann sjálfur setti en að gagnrýna tilvonandi starfsmenn sína.
 
Það má alveg bæta við að téðum atvinnurekanda er boðið að hitta 40 til 50 prjónakonur annað kvöld hér í Reykjanesbæ því þær langar að heyra meira um fyrirtækið og störfin sem að hans sögn hefur valdið honum vonbrigðum hve fáir sýna áhuga. Þessar konur mætti kalla sérhæft starfsfólk sem ætti vel við sem tilvonandi starfsfólk sem ódýrara væri að koma inn í saumastörfin vegna fyrri reynslu og áhugamála sinna.
Ég veit fyrir víst að Ágúst hefur fengið boðið frá þeim en hann sér ekki fært að mæta. Ætlar "kannski" að senda einhvern fyrir sig. Hvað segir það um áhyggjur hans og vonbrigði?

Mér finnst því líklegra að þetta fyrirtæki sé að nýta sér neikvæða umfjöllun til að auglýsa betur þessi sérhæfðu störf en að hann hafi áhyggjur af lundarfari Suðurnesjamanna. 
 
http://vf.is/Frettir/52913/default.aspx

mbl.is Lítil ásókn í laus störf á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagleg vinnubrögð??

Svona orðaskipti eins og Ólína og Árni viðhöfðu í dag eru eitt af því forvitnislegasta í stjórnkerfinu okkar Íslendinga og það má að mínu mati ávalt mæla "andlega" stöðu mála og þreytu þingmanna á því hve snöggir og gjarnir þeir eru að falla niður í...

Varað við gylliboðum

Datt um aðra frétt sem á vel við: Landlæknir hvetur fólk til þess að vera gagnrýnið á auglýsingar um alls konar gylliboð þar sem boðið er upp á töfralausnir sem eiga að lagfæra það sem hrjáir landsmenn. „Frá örófi alda hafa komið fram töfralausnir...

Réttar vörur á réttum stöðum...

Þegar ég var lítill var hefðin sú að ég fór með mömmu og pabba í matvörubúð að kaupa mat. Bókabúðir seldu bækur, bensínstöðvarnar höfðu á boðstólnum hinar ýmsu vörur fyrir bílinn, sjoppur seldu nammi, dekkjaverkstæði þjónustuðu dekk, og...

Reiðileysi eða skipulag?

Ég á erfitt með að staðsetja hann Guðmund í pólitík. Einhvern tíma var hann framsóknarmaður, svo vissi ég af honum í Samfylkingu og svo aftur í framsókn. Svo er hann flokkslaus og orðað við hann sérframboð. Fyrir nokkrum dögum var ýjað að því að hann...

Uppbygging samfélagsins eftir hrun

Ég er ekki lengur hissa hvers vegna margir bera lítið traust til annarra eftir hrunið. Og þetta sýnir svo vel hvert hugarfarið getur verið og hvernig fólk velur að hunsa samfélagið sem það hefur alist upp við. Að sjálfsögðu munu einhverjir gagnrýna...

Kaldast í Samfylkingunni

Hvergi mældist kuldinn meiri í þingflokkum í kvöld en í Samfylkingunni. Þar var hitinn, eða öllu heldur frostið, -18,6°C klukkan 21 í kvöld. Í Vinstri Grænum var líka mikið frost eða -17,1°C. Samkvæmt upplýsingum frá þvaðurstofu Íslands gæti frostið í...

Viðskiptavinur fannst á lífi eftir 2 1/2 ár í kerfinu

Guðrún Jónsdóttir, viðskiptavinur bankana sem týndist í afskekktu lánasafni Arion banka fyrir tveimur og hálfu ári síðan, er fundin. Gjaldkerar fundu Guðrúnu á lífi nærri staðnum þar sem húsnæðislán hennar festist. Guðrún, sem er 56 ára gömul, tjáði...

Hvað er ódýrt??

Nú er tíminn til að spyrja sjálfan sig þessarar spurningar. Neyslufíkn þjóðfélagsins er ógnað með óþrjótandi magni af ónauðsynjum sem kosta upp að og yfir atvinnuleysisbótum í heilan mánuð. Tökum dæmi iPhone 4. Snilldar sími og vönduð vara, en af hverju...

Banna notkun laga

Skriffinnar í ríkisstjórn hafa bannað ráðherrum að notast við lög á Alþingi. Er bannið rökstutt með því að lögin geti sært þingmenn. Þurfa ráðherra nú að framvísa tilmælum frá lækni til að mega notast við lög á þingi. Fjallað er um málið á vef alþingis...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband