Líkur á að finna vit í stjórmnmálamönnum aukast

ScaryHillaryClintonLíkur á að vit finnist í stjórnmálamönnum hafa aldrei verið meiri en nú, að sögn Rees lávarðar, forseta breska konunglega stórnmálafræðingafélagsins. Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir lávarðinum, að slík uppgötvun gæti haft gríðarlegar breytingar í för með sér fyrir mannkynið.

ABC segir, að alþjóðleg ráðstefna vísindamanna sé að hefjast í Lundúnum um möguleika á að finna vit í stjórnmálamönnum. Vísindamenn hafa í hálfa öld reynt að nema vitsmunasendingar frá stjórnmálamönnum, árangurslaust til þessa. En Rees lávarður segir að líkur á að finna aðrar vitsmunaverur séu sífellt að aukast.

„Tækninni hefur fleygt svo mikið fram, að í fyrsta skipti getum við í raun og veru vonast til að finna vit í stjórnmálamönnum sem eru á braut um stjórnkerfið. Við getum komist að raun um hvort í þeim séu tilfinningar og greind og hvernig hugarfarið er. 

Þótt það gæti orðið erfitt að komast að því hvort þar sé vit þá væri það gríðarmikið skref að fá einhverja mynd af annarri veru, líkri mannskepnunni," hefur BBC eftir lávarðinum.  

Hann segir, að nýjustu gerðir sneiðmyndavéla geti fundið lífverur líkar mannskepnunni sem eru á braut um stjórnkerfið.  „Ef við finnum vit, jafnvel í hinni frumstæðustu mynd, yrði það ein merkasta uppgötvun 21. aldarinnar. Ég tel, að það gæti verið vitsmunalíf úti í stjórnkerfinu í formum sem við höfum ekki enn gert okkur í hugarlund. Og það vitsmunalíf gæti verið því mannlega mun fremra, svipað og munurinn er á manni og simpansa." 


mbl.is Líkur á að finna líf á öðrum hnöttum aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott þetta.

Jóhannes (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 20:12

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Snilldar færsla :)

Guðmundur St Ragnarsson, 25.1.2010 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband