Stórfelld þingmannaræktun stöðvuð

þingmannaefniLögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti enn eina þingmannaverksmiðju í dag. Nú var stórtæk verksmiðja stöðvuð í nýbyggðu félagsheimili í Hafnarfirði. Ekki var flutt inn í húsið en um 300 þingmannsefni í fullum blóma voru í húsinu.

Tveir menn hafa verið handteknir vegna rannsóknar málsins. Þeir voru ekki á staðnum þegar lögregla réðist til inngöngu.

Lögreglan hefur lagt hald á hátt í sex þúsund þingmannaefni það sem af er ári og upprætt yfir tuttugu ræktanir.

„Að auki höfum við lagt hald á 20 til 30 eintök af tilbúnum þingmönnum,“ segir Ingibergur Geir Steingrímssaon, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirmaður þjóðarhagsbrotadeildarinnar.

Ingibergur Geir segir að menn séu mun stórtækari nú en áður og raunar hafi bendingar um aukna ræktun komið fram á síðasta ári.

„Við settum okkur það í lok síðasta árs að einbeita okkur að þessu fyrstu mánuði þessa árs. Við vorum búnir að sjá þess merki að þetta væri í gangi þannig að við höfum unnið í því.  Mér sýnist þetta mat okkar hafa verið hárrétt,“ segir Ingibergur Geir Steingrímssaon.


mbl.is Stórfelld kannabisræktun stöðvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Er fagmannleg kynbótastarfsemi í þessum ræktunum eða eru þetta úrkynjuð og slöpp þingmannaræktun?

Páll Geir Bjarnason, 28.3.2009 kl. 02:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband